Aðalvalmynd

Auglýsing

Klukkan

Minnug eins og fíll !!

23. maí 2008 klukkan 23:25

Ákvað nú að tékka hvort að ég gæti nú sænað mig inn á þessa dásemdar síðu 10 árum seinna ...
Það tókst, það tókst, það tókst já.. we did it Hlæjandi

Ooooo  ég er svo snjöll !

Á nú samt ekki von á því að einhverjir kíki hérna inn ennþá

En velkomnir
þeir sem það gera

.......

23. september 2007 klukkan 09:20

nenni  þessu ekki í bili .........

Monkey monkey......banani

17. ágúst 2007 klukkan 21:06
Ég er hér sprellalæf !!
Veit ekki hvaða leti er í gangi með þessa blessuðu pistla mína !! Ullandi
Sá að k700i var búin að setja inn eina bloggfærslu í sumar !!! Já það er bara harkan maður!! Hlæjandi go girl go
Ætla líka a nota tækifærið og veita dreifbýlistúttunni andsvar : Já, ég skal sko sjá um partýveitingar í höllinni !! og var einmitt að frétta af maraþon bootcamp námskeiðum.... er að melta þetta !! er bara svo hrædd um að missa aukakíló og komast í form Öskrandi hehe

Annars er farið að róast aðeins í kringum mig. Síðasta vika reyndar búin að vera crazy. Lagðist svo í rúmið með hor, hita og slef á þriðjudaginn en stóð það nú af mér með stakri prýði !! Enda ekki annað í boði þar sem að loforðin voru að sprengja báðar ermarnar !

Reykjavíkurferðin var æðisleg... ég og vigga skelltum okkur suður og hittum doktor Melumad sjálfan:) Mikið hlegið ... er bara illt í maganum ennþá!!!Hlæjandi
Takk fyrir frábært kvöld k700i, Tryggvi, tóbak og hækja GlottandiHlæjandi

Ekkert verður að brúðkaupsvinnunni á laugardaginn sökum hárrar gjaldskrárr hjá mér og mínum. En það verður indælt að fá smá helgarfrí Brosandi
Byrjaði í kennaravinnuni í morgun. Er ennþá að melta þetta. Finnst svo fáránlegt að vera allt í einu komin með pláss inn á kennarastofu. Maður er greynilega ekki 15ára lengu. En þetta verður bara frábært. Hlakka til að takast á við komandi vetur.

Kallinn að verða 30.ára á sunnudaginn. Partý hjá okkur 25.ágúst honum til heiðurs Hlæjandi

Búið að staðfesta Köben ferð með fyrirtæki kjellsins þann 14 september !! Gvöööööð hvað mig hlakkar bara til Hlæjandi
Nóel að byrja í aðlögun á mánudaginn.......... þetta er ekki eðlilegt !! Barnið bráðum að verða eins árs !!! TIME FLYES !!!

Ætla að fara koma gormunum í háttinn

Meira seinna ....

........ mánuði seinna

25. júlí 2007 klukkan 12:01
Sumarið er að verða búið !! þetta er ótrúlegt
Búið að vera mikið að gera síðustu viku og það virðist enginn breyting vera þeim hlutunum ef ég horfi fram á við !!!

  • Er að taka vaktir á Eddu hóteli
  • þess á milli reyni ég að komast á fússball æfingar
  • Móðir að verða fimmtug á föstudaginn
  • Íris sys og hennar familý að koma á föstudagsmorgun
  • Er að fara suður í næsta mánuði
  • Brúðkauspveisla í næsta mánuði líka, fæ nú góða hjálp að  sunnanHlæjandi
  • Vinnan byrjar svo á fullum krafti um miðjan næsta mánuð
  • Er að taka við hópstjóranum í Volare hér á austurlandi !!!!
Auk fleiri hluta sem eru í gangi en verða ekki taldir upp hér Ullandi
Væri ekki verra ef að það færi að hlýna aðeins.....
Hef ekkert meira að segja
Kveð í bili

Þá er það ákveðið !!

29. júní 2007 klukkan 20:17
Allt að gerast  !!
Nóel  litli púki er kominn  inn á leikskólann og byrjar aðlögun þann 20.ágúst  á  Greniholti Hlæjandi Er ekki að ná því hvað tíminn líður hratt. Og ekki má gleyma að segja frá því að önnur framtönnin  fannst 27.júní þannig að minn er bara flottastur.
Maron stóri gæ færist upp í Furuholt eftir sumarfrí og er þar með kominn á elstu deildina og verður þá aftur með Hilmi besta vininum á ný Glottandi
Ég skrifaði undir ráðningasamning í dag og er þar með búin að tryggja mér vinnu a.m.k næsta árið. Er mjög spennt yfir þessu og efast ekki um að þetta verður þrusu gaman. Verð semsagt með heimilisfræðikennslu og samfélagsfræði kennslu í 4.bekk. Og fylli svo upp í með forfallakennslu.
Þetta er allt svo spennó Hlæjandi

Annars gekk leikurinn ekki alveg eins og við vildum á móti Hetti en svona er nú bara lífið. Var reyndar alveg hel geðveik í þokkabót  en það rann nú af mér seinnipart  næsta dags Saklaus
Afmælisdagurinn annars bara hinn fínast og þvílíkt gjafaflóð !! Takk fyrir mig allir, bæði kveðjur og annað Koss Hef ekki fengið svona mikið af afmæligjöfum síðan ég var krakki !!!!!

Annars er ég  bara með hor og slef og er orðin frekar þreytt á þessu flensu ógeðs ógeði !!Öskrandi Búið að vera drullukalt en á nú víst eitthvað að batna á morgun !! Vonandi !!!!!

Segji þetta bara gott í bili.... þarf að þjóta !!!

hvað er uppi ?

25. júní 2007 klukkan 00:03
Það er ekki nema von að ég spyrji.
Er að drepast í fótunum og er  fólk búið að greina mig villt og galið með beinhimnubólgu !! Ullandi hljómar ekki vel og er langt frá því að vera gott.
Er einnig með dúndrandi hausverk as ví spík!! og það er heldur ekki gott.
En það sem er gott er nú frétt dagsins sem er svohljóðandi ; leidís and djentúlmen.... má ég kynna nýjasta kennarann í familiunni ......MIG SJÁLFA !! Hissa
Já, það er víst búið að slá því á fast að ég taki við heimilifræðikennslu næsta semester hér í skólanum. Finnst það nú samt dáldið fyndið þar sem að mér finnst ég bara hafa útskrifast úr 10.bekknum sjálf fyrir kannski í mesta lagi 3.árum síðan . En nei það eru víst komin ein 11.ár síðan að það gekk yfir.
OMG !! það er dáldið mikið .... Öskrandi
Maður er bara að verða gömul kona !! og er líka minntur á það næstum því daglega.

Er annars ekki að nenna skrifa neitt hér inn sökum verkja hér og þar og einnig ber að nefna óumflýjanlega þreytu þar sem að svefn gömlu konunnar riðlaðist um helgina og það er ekki mjög vinsælt

Ætlum að mala Hött annaðkveld..(mánukveld)    það yrði nú meiri draumurinn !!

En kveð að sinni lurkumlaminn Gráta

Ole ole ole ole .....

20. júní 2007 klukkan 16:20
Já, er frekar glöð þessa dagana ! mikið um að vera .
Nóel fékk sína fyrstu tönn þann 18.júní. Ólíkt flestum börnum þá ruddist vinstri framtönnin niður og dáldið fyndið að sjá hann með eina stóra tönnslu í munninum. Það hafði nú einhver orð á því hvort að hann myndi nú ekki verða bara eins og glámur og skrámur Hlæjandi hehe ... hann er algjört gull.
Svo er minn maður farinn að standa upp í rúminu sínu og líka farin að veifa bless eftir hentisemi.

Maron er bara hress en er nú  að fá myndarlegt glóðurauga. Hann flaug meistarlega á hausinn í rennibrautinni í leikskólanum í dag. Við drifum okkur til  Doksa þar sem að skurðurinn er frekar nálægt vinstra auganu en þetta sleppur allt fyrir horn !
Báðir drengirnir líka með góðan skammt af hori og hósta....... algjör draumur Óákveðinn eða ekki !!

Og svo er ég ennþá í sæluvímu eftir gærkveldið. Fyrsti sigur okkar leiknisfúsballkvenna í höfn og erum þar af leiðandi í 5 sæti í riðlinum en ekki í því 7unda eins og fyrir örstuttu  !! Þær ensku eru  algjörir snillar og ég veit að það verður erfitt að sjá á eftir þeim til Uk í lok næsta mánaðar.

Foreldrar og afi og amma komin frá Dk ! Og að sjálfsögðu komu þau færandi hendi og heldur betur bæst í fataskápana hjá okkur!! 1000 þakkir fyrir það  Glottandi

Ég er bara eitthvað svo kát og glöð þessa dagana !! Bara gaman að vera til !!! Hlæjandi





Mæ ó mæ !!

17. júní 2007 klukkan 00:06
Sælt veri fólkið !
Bara 17 júní á morgun !! Finnst samt örlítið stutt síðan sá síðasti var haldinn hátíðlegur hér í bæ, en samkvæmt vísindalegum útreikningum er nákvæmlega ár síðan á morgun ! Ullandi alveg merkileg þessi vísindi !!

But eníhú ....... Var að koma úr alveg sérdeilis magnaðri matarveislu hinumegin við fjallið ! Við kvinnur í fúsboll klubb Leiknis vorum að bjóða  3 enskar pæjur velkomnar í liðið sem ætla að spila með oss út  júlímánuð. Þetta virðast bara vera fínustu stelpur þó að  talandinn hjá þeim sé stundum gjörsamlega óskiljanlegur.... þið vitið, svona mega londoníska !!Glottandi En æfing á morgun og gaman að sjá  hvað þær eru flinkar.

Bara 2og 1/2  dagur í heimkomu familínnnar. Það verður gaman að sjá þau  aftur en þó held ég að Nick verði hunda kátastur að komast aftur í heimahús!

En er orðin frekar lúinn eftir annasaman dag !!

Til hamingju  Erla með útskriftina !!
Til hamingu Steina með afmæli  !!

Styttist óðum í afmælið mitt Svalur jeijeijei !!!

zzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzz

Þvílíkur og annar eins dugnaður !!

13. júní 2007 klukkan 11:47
Það er ekki hægt að segja annað!!
Það er svo langt síðan ég uppfærði að ég man ekki hvað hefur á daga mína drifið !Ullandi
Veðrið búið að vera dásamlegt svona á heildina litið, samt eitthvað farið að kólna aftur og vinda örlítið !

Mamma, pabbi, amma og afi flugu til Köben í gær og verða í viku  !! Mér finnst það alveg skelfilegt því að nú hef ég engan til að angra í hádeginu og kaffinu!! Mér líður svona eins og Palla sem vaknaði einn morguninn og var bara sérdeilis einn  í  heiminum Gráta

Nick varðhundur með meiru er í fóstri hjá okkur í þessa viku. Coco rassgat er nú alveg hoppandi ánægð yfir því og gerir líitð annað en að angra hann og pirra! Ekki ósvipað því hvernig ég lét við stóru systir mína hér forðum . Hlæjandi

Er ennþá að bíða eftir svari með vinnu sem ég mun þá byrja í í haust..... það verður mjög spennandi ef að allt gengur upp þar !! Held að svarið muni berast áður en þessum mánuði lýkur !!

En ætla ekki að hafa þetta lengra ...... Nóel orðin spinnigal af þreytu...
ciao .....ding dong de

þrjú tonn af sandi .... durudurururu

23. maí 2007 klukkan 21:25
Er orðin sperrt og laus við ógeðsjaxlinn sem er búinn að vera pirra mig. Kvikindið er í poka upp í skáp og fær að dúsa þar áfram. Tanntakan tók heila mínútu ef að það náði því þá og kostaði ekki nema 13.500 kalldjöful.Öskrandi Ég er augljóslega á rangri hillu hvað tekjur varða. Ætla jafnvel að íhuga að opna tanntökuverkstæði í bílskúrnum.
Er ekki búin að frá svar með vinnuna sem ég sótti um. Hlýtur að koma í ljós bráðlega. Óákveðinn
Og kraftaverkin gerast enn. Mín búin að dusta rykið af takkaskónum og farin að veltast um á vellinum á ný eftir margra ára hlé. Get ekki sagt að líkamlegt ástand sé  í góðu lagi en ..... maður reynir bara að hlaupa af sér spikið !!  Þetta leggst bara vel í mína !! fyrir utan  smá hnjask á hné Ullandi það lagast .

Nenni bara ekki að sitja inn meira !
Hvernig væri svo að kvitta fyrir sig... mér leiðist fólk sem snuðrar og segjir síðan ekki orð !!!!